Sagan endalausa

Þetta ætlar að verða Vietnam x10 þarna í Írak fyrir Ameríkana. Skelfing geta greyin verið vitlaus. Allt út af olíunni, þar sem allir vita, þá eru Ameríkanar mesta neysluþjóð veraldarinnar, í magni og miðað við höfðatölu. Svo sér maður myndir frá Ammríkkunni þar sem öfgarnir eru hvað mestir, akfeitir letihaugar versus grindhoraðir ræflar, eini munurinn er trúlega vaxtarlagið.

Af einhverjum illskiljanlegum ástæðum er mér persónulega frekar illa við Ameríkuna og allt það sem þeir standa fyrir, þekki einungis nokkra Kana, þeir eru frekar misjafnir og kannski endurspeglar það blönduna þarna. Svo hef ég verið í netsamskiptum við allnokkra og er sama niðurstaða þar.  Gott dæmi um öfgakenndar skoðanir einhvers hluta Ameríkana eru viðbrögð eins einstaklingsins sem ég var í sambandi við þarna ytra. Einhvern tímann bar á góma hann Keikó, blessuð sé minning hans, mér varð á að kalla hann heimskan fisk, og fyrir vikið var ég nánast réttdræpur. Ég spurði viðkomandi hvort hann vissi eitthvað um Háhyrninga (Orca) en fátt varð um svör. Þá uppfræddi ég viðkomandi töluvert um tegundina, t.d. það að þeir eru sennilega einna líkastir okkur mönnunum, t.d. að þeir veiða sér oft til skemmtunar, leika sér að bráðinni og standa oft í algjörlega tilgangslausum drápum.  

Ég fór á útrýmingarlista fyrir leiðsögnina.

Já, kanarnir eru allduglegir við að skjóta sig í lappirnar, eða öllu heldur að skjóta undan sér lappirnar, vegna utanríkisstefnu þeirra eru þeir iðnir við að mála sig útí horn og kenna svo einhverjum öðrum um, finna sér alltaf einhverja ástæðu til að hefja þetta stríðið eða hitt. Allt í þágu einkaneyslu sinnar og heimsvaldastefnu. Verst er þó að vita það að almenningur í Ammríkkunni veit ekkert um heimsmálin og láta mata sig á vitleysunni í gegnum sjónvarp og bíómyndir. 

Alltaf er það jafnfyndið í hvert skipti þegar þeir eru að halda World Championship í einhverri íþróttagrein, þá helst Ameríska boltanum. Þeirra veruleiki er sá að The World eru Bandaríkin einungis, restin af heimsbyggðinni er ekki tekin með. Alltaf jafn fyndið. They're only a bunch of narrow minded rednecks, totally unaware of the rest of the planet.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband