Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Já!!

Rosalega gætum við reddað viðskiptahallanum okkar og í framhaldinu háu stýrivaxtastigi, ef við færum út í svona massaframleiðslu, við höfum allt sem til þarf, meira að segja efnafræðikunnáttan er til staðar hérna skilst mér.

mbl.is Mesta magn eiturlyfja sem lagt hefur verið hald á í Hollandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk vanvirðing

Þetta kemur mér ekkert á óvart og þar sem ég fer nokkuð um bæinn daglega, sé ég mörg ökutæki sem eru komin allt að tvö ár framyfir skoðunartíma, svo og endurskoðunarmiðar frá árinu áður, er mjög algengt.

mbl.is Margir nota ekki bílbelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amerísk Paranoja

Kannski er ein skynsemistýra þarna vestra eftir allt. Verst er að vita að þessi ætlaða hryðjuverkaógn er vegna heimsvaldatilburða kananna sjálfra. Og þeir virðast ekki skilja það.

mbl.is Edwards segir „hryðjuverkastríðið“ einungis slagorð Bush-stjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmm....

Ég hreyfi mig bara og borða skynsamlega, engin fyrirhöfn. Ekkert gos og snakk yfir imbanum, horfi bara á fréttirnar, sný mér svo að einhverju skemmtilegra, t.d. labbitúr á kvöldin. 
mbl.is Líkamsrækt og lýsi öflug vopn gegn aukakílóum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jeij...allir í Islam....koma svo....

Mér finnst allt í lagi að geta átt nokkrar kjellingar, ef ein er með hausverkinn, þá er það bara næsta. Flottir þessi Múlsimar. 
mbl.is Danskur múslimaklerkur segir karla mega eiga allt að 4 konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverjar eru líka snillingar

Þessir tilburðir Kínverja til að herma eftir tískumerkjunum er að mínu mati háð á alla þessa tískumarkaðshyggju og óforbetranleggt snobb. Ég til að mynda geng í inniskóm heima hjá mér sem voru keyptir í Rúmfatalagernum fyrir langt undir þúsundkallinum og eru eftirlíking af Adidas skóm. Kínverjarnir kalla þá Asadi og eru bara fínir til síns brúks. Ekki hefði mér dottið í hug að kaupa Adidas inniskóna á nokkur þúsund, bara úta af merkinu. Þetta er eiginlega bara snilld hjá þeim.

Ég hef alla tíð verið frekar afhuga öllum svona snobb tilhneigingum, elta tískumerkin og bruðla með fjármuni, sennilega vegna þess að ég hef ekki haft svo mikið milli handanna, ef við miðum við kaupæðið og annað brjálæði í okkur Íslendingum almennt. Ég er ekki upptekinn af ytri skel minni, er einfaldlega ég sjálfur og lifi mínu lífi samkvæmt því, án allra aukaefna og óþurftar eyðslu og sóun. Get meira að segja orðið verulega argur út í allan auglýsingapóstinn sem ryðst inn um lúguna dag eftir dag. Að mínu mati tilgangslaust.

Ég styð Kínverjana. :) 


mbl.is Kínverskar eftirlíkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viagra....já

Af tvennu illu kýs ég flugþreytuna fram yfir bóner sem engu skilar. Hver borgar laun þessara manna sem þykjast finna svonalagað út?

mbl.is Viagra kann að nýtast gegn þotuþreytu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðakstur

Nú verður mér hugsað til orða sem sögð voru við mig í tengslum við háttalag samborgaranna á förnum vegi, þau hljóða á þessa leið; "Á meða síðasta fíflið er ekki fætt, þá er þetta eitthvað sem við verðum að lifa við".

Nei, þótt tugir manns látist í umferðinni ár hvert, þá vitkumst við ekki rassgat. Alltaf er viðkvæðið það sama, "Þetta var ekki ég", "Ekkert kemur fyrir mig", "Ég er miklu betri bílstjóri en allir hinir" Andskotans fíflaskapur í fólki, drullist til að virða lögin, erkifíflin ykkar. 


mbl.is Mikið um hraðakstur í sól og vindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vistun gagna á netinu

Rebekka er snillingur, engin spurning, en veit ekki með snilligáfuna þegar kemur að vistun gagna sinna á netinu. Á flickr.com eru myndirnar vistaðar í óhóflega stóru upplagi og afar einfalt að stela efni  þaðan, þarf enga sérstaka kunnáttu til þess. Það sem fólk verður að hafa í huga er að vista myndir í lítilli upplausn, ekki meira en 72dpi og stærðina ekki yfir 800x600 pixlum. Þá er búið að koma í veg fyrir að hægt sé að gera nokkuð með myndirnar annað en að skoða þær online. 

Sjálfur geymi ég mikið magn mynda á netinu, en ekki á flickr.com Ég veit hversu örygginu er ábótavant á erlendum netveitum, þess vegan notast ég við íslenska netvistun þar sem heimatökin eru mun betri. Sjálfsagt eru flestir að reyna að spara sér eitthvað með því að vista myndir sínar eða önnur gögn á síðum eins og flickr og fleiri slíkum, þá er alveg ljóst að "sparnaðurinn" verður ekki mikill þegar efninu er stolið og aðrir maka krókinn á því.

Nei, skárra er að borga 3 þús kall á ári og vita af gögnunum öruggum í staðinn.  


mbl.is Stela íslenskum myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrifamáttur netsins í höndum óvita

Þetta er því miður of oft að gerast, burtséð frá því hvort um sé að ræða Annie Lennox eða aðra. Hefur oft gerst hérna á klakanum, fréttir berast hratt með SMS, MSN og á blogsíðum.

mbl.is Heimili Annie Lennox lagt í rúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband